Hafa samband Veftré Minnka letur Stækka letur English
Forsíða FyrirtækiðVörurSamstarfsaðilarPantanir og tilboðBæklingarTæknilýsingarFróðleikurTenglarCE merking
 
Samlímt öryggisgler

Samlímt öryggisgler samanstendur af tveimur eða fleir lögum af gleri með öryggisfilmu á milli glerja. Samlímt gler er sambærilegt að styrk og venjulegt gler. Öryggið liggur í hvernig glerið brotnar, brotin falla ekki niður heldur tollir rúðan saman. Öryggisgler hentar vel í glerveggi, handrið, gólf, þrep, þök, hurðir, glugga, innréttingar o.fl. Hvarvetna þar sem þörf er á öryggi og vernd t.d. í íbúðarhúsnæði, verslunum, skólum og opinberum byggingum.

Samlímt gler er hægt að fá í ýmsum þykktum og tegundum til að uppfylla kröfur sem gerðar eru til ákveðinna verka.  Það má vinna á margan hátt t.d. skera, slípa, bora, sandblása, sprautulakka og einnig er hægt að herða einfalt gler og samlíma síðan í lagskipt gler með öryggisfilmu á milli.

Stærð og þykkt:  Framleiðslustærð samlímds öryggisglers er allt að 2100 x 3210 mm.  Stærra gler er með lengri afgreiðslufresti.  Þykktir á lager: 6 mm (3/3), 8 mm (4/4), 12 mm (6/6).  Aðrar þykktir fáanlegar.

Byggingarreglugerð: 
Nr. 441/1998 segir m.a.: “Í byggingum þar sem um stóra gluggafleti er að ræða í þökum, eða þar sem byggt er yfir göngugötur eða torg, skal vera öryggisgler.”
“Gler í þakflötum útbygginga, yfirbygginga o.þ.h., þar sem hætta er talin á hruni frá hærra liggjandi byggingarhlutum niður á glerið, skal vera öryggisgler.
“Öryggisgler skal vera í anddyrum opinberra bygginga, veitinga- og samkomuhúsa og merkja til viðvörunar glerfleti við aðkomuleiðir þeirra".

Hér má nálgast upplýsingar um staðsetningu og opnunartíma. Upplýsingar um sumarlokanir.
 
CE merking 

Glerverksmiðjan Samverk ehf | Eyjasandi 2, 850 Hella | Víkurhvarfi 6, 203 Kópavogi | Sími 488 9000 | Fax 488 9001 | samverk@samverk.is